Sönghátíð í Hafnarborg 2020 býður upp á söngnámskeið með mezzósópransöngkonunni og söngkennaranum Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur fyrir söngnemendur á grunn- og miðstigi. Farið verður í ýmislegt varðandi söngtækni, svo sem líkamsstöðu, öndun, stuðning, sérhljóðamyndun, að syngja hreint, hátt og lágt, veikt og sterkt. Einnig verður farið í túlkun og sviðsframkomu. Markmið námskeiðsins er að nemendur nái að njóta þess að syngja af enn meira frelsi og með dýpri tjáningu en áður. Nemendur skulu undirbúa tvö einsöngslög sem þeir geta sungið eftir minni og unnið í fyrir framan aðra nemendur á námskeiðinu.