ALEXANDER JARL ÞORSTEINSSON tenór hóf söngnám ungur að aldri við Tónlistarskóla Vestmannaeyja haustið 2002 hjá Önnu Alexöndru Cwalinska og Anniku Tonuri og frá 2009 - 2011 hjá Guðrúnu Jóhönnu Jónsdóttur við Tónlistarskóla Garðabæjar. Eftir að hafa lokið námi við framhaldsdeild Söngskóla Sigurðar Demetz hjá Gunnari Guðbjörnssyni hélt Alexander til náms við Royal College of Music í London, en þar lauk hann Graduate Diploma in Vocal Performance. Í Óperudeildinni söng Alexander Jarl hlutverk Orfeo í uppfærslu skólans á Orfeo eftir Claudio Monteverdi í febrúar 2014; Lyonel í Martha eftir Friedrich von Flotow 2015 og Beppe í Rita eftir Donizetti 2016.
ANDRI BJÖRN RÓBERTSSON, bassabarítón, er einn af fremstu söngvurum Íslendinga af yngri kynslóðinni. Leikárið 2020/21, hefði Andri átt að snúa aftur á svið óperunnar í Zürich í Jóhannesarpassíunni með La Scintilla hljómsveitinni undir stjórn Riccardo Minasi og endurtaka hlutverk sín í Lessons in Love and Violence eftir George Benjamin í Châtelet leikhúsinu í París, en þessum uppfærslum var báðum aflýst vegna Covid-19. Á síðasta leikári debúteraði Andri í hlutverki Fígarós í Brúðkaupi Fígarós í uppsetningu Íslensku Óperunnar og átti síðan að snúa aftur til Hollensku Þjóðaróperunnar sem Der Einäugige í Die Frau ohne Schatten, en uppfærslunni var aflýst vegna Covid-19. Leikárið 2018/19 söng Andri bæði við Ríkisóperuna í Hamborg og Óperuna í Lyon sem Witness 3 / Madman í Lessons in Love and Violence. Uppfærslurnar komu í kjölfarið á debúti Andra við Konunglega Óperuhúsið í Covent Garden, í heimsfrumsýningu sömu óperu. Sem Harewood listamaður við Ensku Þjóðaróperuna söng Andri hlutverk Angelotti í Toscu, Ceprano í Rigoletto, Basilio í Rakaranum frá Sevilla, Lord Krishna í Satyagraha eftir Philip Glass, Theseus í Jónsmessunæturdraumi Brittens, og Gyðing í Salome. Andri hefur einnig sungið víða um Evrópu, m.a. við Óperuhúsin í Zürich og Amsterdam, Opera North, Festival d’Aix en Provence og Bolshoi leikhúsið í Moskvu. Á óratoríusviðinu hefur Andri sungið í kantötum, Jóhannesar- og Mattheusarpassíunum og H-moll messu eftir J.S. Bach, Messíasi eftir Händel, Harmoniemesse og Sköpuninni eftir Haydn, Sálumessu og Krýningarmessu Mozarts, Messa di Gloria eftir Puccini, og L’enfant et les sortilèges eftir Ravel. Hann söng einnig hlutverk Cappadocian og Gyðings í tónleikauppfærslu af Salome með Sinfóníuhljómsveitinni í Bournemouth, og einnig í röð tónleika með barokksveitinni Café Zimmermann í Marseille, La Roque d’Antheron og Aix en Provence. Sem mikill unnandi ljóðasöngs hefur Andri m.a. komið fram í Wigmore Hall, Oxford Lieder Festival, Íslensku Óperunni, Festival d’Aix en Provence, Óperunni í Lille sem og í Salnum í Kópavogi. Andri nam söng við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur. Hann hélt svo til náms við Royal Academy of Music og National Opera Studio í London áður en hann gekk til liðs við óperustúdío Óperunnar í Zürich. Andri er Samling listamaður og Georg Solti Accademia di bel canto nemi, og þakkar Dame Kiri Te Kanawa og styrktarsjóði hennar fyrir stuðning og hvatningu.
www.andribjornrobertsson.co.uk
BENEDIKT KRISTJÁNSSON hóf söngnám 16 ára gamall við Söngskólann í Reykjavík hjá Sibylle Köll og síðan Margréti Bóasdóttur og lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2007 þar sem Margrét Bóasdóttir var kennari hans.
Þar á eftir stundaði hann nám við "Hanns Eisler" tónlistarháskólann í Berlín, þar sem aðalkennari hans var Prof. Scot Weir. Hann útskrifaðist þaðan árið 2015. Benedikt hefur hlotið ýmis verðlaun, s.s. 1. verðlaun og áhorfendaverðlaunin í alþjóðlegri Bach söngkeppni í Greifswald, áhorfendaverðlaunin í alþjóðlegu Bach keppninni í Leipzig, Bjartasta vonin og Söngvari ársins í sígildri og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum auk styrks úr Jean Pierre Jaquillat sjóðnum. Árið 2019 fékk hann OPUS Klassik verðlaunin fyrir "nýstárlegustu tónleika ársins". Þar flutti hann Jóhannesarpassíu Bachs í óvenjulegri uppfærslu, ásamt sembal- og orgelleikara og slagverksleikara. Það sama ár kom út fyrsta sólóplata hans, ,,Drang in die Ferne“, þar sem tvinnuð eru saman sönglög eftir Franz Schubert og íslensk þjóðlög sem sungin eru án undirleiks. Platan fékk mikið lof gagnrýnenda í Þýskalandi og á Íslandi, og var líka tilnefnd sem plata ársins á ICMA, OPUS Klassik og á íslensku tónlistarverðlaununum 2020. Benedikt hefur komið fram sem einsöngvari í mörgum af stærstu tónleikahúsum heims, eins og Fílharmoníunni í Berlín, Concertgebouw Amsterdam, Chapelle Royal í Versölum, og í Walt-Disney Hall í Los Angeles. Einnig hefur hann sungið í Óperuhúsunum Staatsoper Berlin, Theater Kiel og Staatstheater Braunschweig. Hann er tíður gestur á virtum tónlistarhátíðum, eins og Bachfest Leipzig, Musikfest Stuttgart, Händelfestspiele Halle og Oude Muziek Festival Utrecht. Hann hefur unnið með mörgum virtum stjórnendum, þar má nefna Reinhard Goebel, Reinbert de Leeuw, Peter Dijkstra, Vaclav Luks, Hans-Christoph Rademann, Vladimir Jurowski og Philippe Herreweghe.
BJÖRK NÍELSDÓTTIR sópran stundaði nám í klassískum söng við Tónlistarskólann í Hafnarfirði og við Tónlistarháskólann í Amsterdam. Árið 2015 útskrifaðist Björk með hæstu einkunn úr mastersnámi þaðan og fékk hún auk þess sérstaka viðurkenningu fyrir listsköpun. Björk hefur komið fram í frumflutningi á fjöldamörgum óperum, leikuppfærslum og tónverkum t.d. Wozzeck eftir Romain Bischoff og Beeldenstorm eftir Jan-Paul Wagemans. Einnig hefur hún túrað með Björk og Florence and the Machine. Framundan hjá Björk er útgáfa og tónleikaferðalag um Evrópu með Kaja Draksler Oktett og á næsta haust uppfærsla á nýrri óperu með leikhópnum Holland Opera. Björk var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 og tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem söngvari ársins sama ár.
ERLA DÓRA VOGLER mezzósópran lærði söng við Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs, Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarháskóla Vínarborgar. Helstu kennarar hennar voru Keith Reed, Þórunn Guðmundsdóttir, Bernhard Adler, Marjana Burgstaller-Lipovšek og Rotraud Hansmann. Erla hefur sungið í ýmsum tónleikaröðum s.s. Klassík í Vatnsmýrinni, KÍTÓN og Sumartónleikum LSÓ, og komið fram sem einsöngvari með sinfóníuhljómsveitum, kammerhópum og kórum. Erla hefur gefið út tvo geisladiska: Víravirki – íslensk söngljóð, 2010, og Jórunn Viðar – Söngvar, ásamt Evu Þyri Hilmarsdóttur, 2019. Sá diskur var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins.
EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR píanóleikari hefur verið áberandi í tónlistarlífinu hérlendis undanfarin ár og hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2018 fyrir geisladisk með sönglögum Jórunnar Viðar, ásamt Erlu Dóru Vogler. Að loknu námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum og The Royal Academy of Music í London , þar sem hún vann til verðlauna fyrir lokatónleikana sína, hefur hún verið virk í flutningi kammer- og ljóðatónlistar og komið fram með mörgum af fremstu tónlistarmönnum landsins auk þess að hafa haldið einleikstónleika og tekið þátt í frumflutningi íslenskra og erlendra verka, m.a. á hátíðunum Myrkum Músíkdögum, Ung Nordisk Musik, Young Euro Classic Festival í Berlín, Young Composers Symposium í London og Óperudögum í Reykjavík. Einnig tók Eva Þyri þátt í nýstárlegri uppsetningu Íslensku Óperunnar á Mannsröddinni eftir Poulenc árið 2017. Hún starfar við Listaháskóla Íslands samhliða tónleikahaldi.
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON tenór lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og MMus gráðu frá Guildhall School of Music and Drama. Fyrsta sviðsreynsla Eyjólfs var sem hundurinn Spakur í söngleiknum Kolrassa eftir dr. Þórunni Guðmundsdóttur og fáeinum árum síðar þreytti hann frumraun sína á fjölum Íslensku óperunnar sem Skáldið í Skuggaleik Karólínu Eiríksdóttur og Sjóns. Meðal annarra hlutverka Eyjólfs á sömu fjölum má nefna Sellem í The Rake's Progress og Peppe í Pagliacci. Eyjólfur tók þátt í frumflutningi óperunnar Ragnheiðar eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson í Skálholti þar sem hann söng hlutverk Daða. Á Þjóðlagahátíð á Siglufirði söng Eyjólfur hlutverk Spóans í frumflutningi ævintýraóperunnar Baldursbrár eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson. Baldursbrá var síðar flutt í Hörpu í samstarfi við Íslensku óperuna. Í sama húsi fór Eyjólfur með hlutverk Loka Laufeyjarsonar í óperunni Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson og var í kjölfarið tilnefndur í annað sinn til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem „söngvari ársins“. Á óperusviðum erlendis hefur Eyjólfur farið með hlutverk hjá Opera North í Leeds, English National Opera í London og English Touring Opera. Eyjólfur er virkur óratoríusöngvari og ljóðasöngvari bæði hér heima og víða um Evrópu. Söng Eyjólfs má finna á fjölmörgum geisladiskaupptökum, s.s. Íslands minni, Aldarblik, ... og fjöllin urðu kyr og upptöku BIS-útgáfunnar á Aftansöngvum (Vespers) Rachmaninoffs ásamt Hollenska útvarpskórnum. Nýverið fór hann með hlutverk Don Curzio í uppfærslu Íslensku óperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Þjóðleikhúsinu. Eyjólfur er meðlimur í tónlistarhópunum Voces Thules og Gadus Morhua Ensemble (ísl. Hið íslenska þorskatríó) þar sem hann syngur, kveður, blæs í barokkflautu og slær á langspil.
Spænski gítarleikarinn FRANCISCO JAVIER JÁUREGUI stundaði nám í klassískum gítarleik í Los Angeles og Madríd áður en hann útskrifaðist með meistaragráðu frá Guildhall School of Music and Drama í London, þar sem hann stundaði einnig nám í spuna og tíorbuleik. Javier hefur komið fram á tónleikum, bæði sem einleikari og flytjandi kammertónlistar, á Spáni, Ítalíu, Möltu, Íslandi, í Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Marokkó og Suð-Austur Asíu. Hann hefur flutt gítarkonserta eftir Vivaldi og Rodrigo (Concierto de Aranjuez) og önnur verk með sinfóníuhljómsveitunum Schola Camerata og Santa Cecilia á Spáni og Sonor Ensemble. Javier, sem einnig er tónskáld, kemur reglulega fram með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur mezzósópran sem Dúó Atlantica, með Elenu Jáuregui fiðluleikara sem Roncesvalles dúóið og með þeim báðum sem Aglaia tríóið. Javier hefur tekið þátt í verkefnum í tónlistarmenntun á vegum Wigmore Hall í London frá árinu 2001. Hann er einn stofnenda Festival Internacional de Música de Navarra (FIMNa) á Spáni og Sönghátíðar í Hafnarborg. Hann kenndi klassískan gítarleik við King´s College og St. Louis University í Madríd, þar sem hann var yfirmaður tónlistardeildarinnar áður en hann flutti nýverið til Íslands. www.javierjauregui.com
GISSUR PÁLL GISSURARSON tenór þreytti frumraun sína aðeins ellefu ára gamall í titilhlutverkinu í söngleiknum Oliver Twist. Hann stundaði nám í Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Magnúsar Jónssonar og söng jafnhliða í Kór Íslensku óperunnar og kom fram sem einsöngvari við ýmis tilefni. Hann nam söng við Conservatorio G.B. Martini í Bologna og í einkatímum hjá Kristjáni Jóhannssyni. Fyrsta óperuhlutverk Gissurar á Ítalíu var sem Ruiz í óperunni Il Trovatore í Ravenna. Hann söng í Così fan tutte undir stjórn Claudio Abbado í Ferrara, Reggio Emilia og Modena og stuttu síðar hlutverk Danilo í Kátu ekkjunni. Hann kom fram fyrir hönd Íslands á EXPO sýningunni í Nagoya í Japan 2015. Gissur Páll lenti í þriðja sæti í söngkeppninni Flaviano Labò og vann tvenn verðlaun í söngkeppni í Brescia. Hann söng í Rakaranum í Sevilla í Heidelberg og í uppfærslum á Werther eftir Massenet og Les Mammelles de Tiresias eftir Poulenc á Sardiníu. Hjá Íslensku óperunni hefur Gissur Páll sungið í Perluportinu, hlutverk Nemorino í Ástardrykknum, Almaviva greifa í Rakaranum frá Sevilla og Rodolfo í La Bohème, en hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir túlkun sína á því síðastnefnda.
GUÐRÚN DALÍA SALÓMONSDÓTTIR er virk í íslensku tónlistarlífi sem einleikari, í ýmsum hljófærahópum og ekki síst sem meðleikari söngvara. Hún stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Guðríði St. Sigurðardóttur og útskrifaðist frá Tónlistarháskólanum í Stuttgart en eftir það lagði hún stund á frekara framhaldsnám í París. Hún hefur hlotið fjölda styrkja og viðurkenninga, þ.á.m. 1. verðlaun í píanókeppni EPTA, og sótt fjölda námskeiða og einkatíma í ljóðaundirleik, m.a. hjá Cornelis Wietthoeft, Edward Rushton og Christoph Prégardien. Guðrún kemur oft fram á tónleikum hérlendis og erlendis og hefur leikið einleik með Ungfóníu og á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún tekur reglulega þátt í ýmsum tónleikaröðum einsog Tíbrá í Salnum, Sumartónleikum Sigurjónssafns, Berjadögum á Ólafsfirði, Klassík í Vatnsmýrinni, Tónlist fyrir alla, Tónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar og Myrkum músíkdögum þar sem hún hefur frumflutt fjölda verka eftir íslensk tónskáld. Út hafa komið geisladiskar með leik hennar með sönglögum Jórunnar Viðar og Karls O. Runólfssonar. Guðrún Dalía er meðleikari við Tónlistarskóla Garðabæjar.
GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR mezzósópran og listrænn stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg hefur komið fram á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og Afríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel, Auditorio Nacional de Música og Teatro Real í Madrid, Glinka sal Fílharmóníunnar og Belozelsky-Belozersky höllinni í St. Pétursborg, Coliseo í Buenos Aires, Wigmore Hall og Royal Festival Hall í London. Hún hefur sungið m. a. með Sinfóníuhljómsveitum Íslands, Madrídar, Barselóna, Katalóníu, Sjónvarps- og Útvarpshljómsveit Spánar, St. Petersburg State Symphony Orchestra og Philharmonia Orchestra í London. Guðrún hefur sungið í óperum á Spáni, Bretlandi og Íslandi og frumflutt fjölda tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld. Hún myndar Dúó Atlantica með gítarleikaranum Francisco Javier Jáuregui og syngur reglulega með Sonor Ensemble, sem saman stendur af hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Spánar undir stjórn Luis Aguirre. Guðrún stundaði söngnám í Tónlistarskólanum í Rvk og Guildhall School of Music and Drama í London, en þar lauk hún meistaragráðu í söng og óperudeild skólans. Hún hefur hlotið Kathleen Ferrier ljóðasöngsverðlaunin í Wigmore Hall, The Miriam Licette Scholarship í Konunglega óperuhúsinu Covent Garden, 3. verðlaun í Concorso Vocale Internazionale di Musica Sacra í Róm, ljóðasöngsverðlaunin í hinni Alþjóðlegu söngkeppni Zamoraborgar á Spáni og verðlaun sem Besti flytjandi tónlistar eftir Rodrigo í Rodrigo keppninni í Madríd. Söngur Guðrúnar hefur verið hljóðritaður á vegum RÚV, Sjónvarpsins, BBC, Spænska ríkisútvarpsins og Spænska sjónvarpsins. Hún hefur sungið inn á sextán geisladiska, m.a. á vegum 12 tóna, Smekkleysu, Naxos, ABU Records, EMEC Discos og Orpheus Classical. Guðrún er stofnandi og listrænn stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg ásamt Francisco Javier Jáuregui. www.gudrunolafsdottir.com www.duoatlantica.com
HAFSTEINN ÞÓRÓLFSSON hefur starfað sem tónlistarmaður um árabil en hann lauk framhaldsnámi í söng frá Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum og í tónsmíðum í Árósum. Hann hefur starfað vítt á tónlistarsviðinu sem flytjandi, allt frá flutningi nútímatónlistar til dægurlaga. Hann hefur frumflutt mörg verk eftir íslensk tónskáld ásamt því að starfa með þekktum listamönnum að verkum þeirra, allt frá Björk til Arvo Pärt. Mörg þessara verkefna hafa hlotið viðurkenningar, unnið eða verið tilnefndar til margvíslegra verðlauna. Má þar nefna íslensku og dönsku tónlistarverðlaunin, BAFTA og Grammy verðlaun.
HALLDÓR BJARKI ARNARSON, semballeikari, er ungur tónlistarmaður sem farið hefur um víðan völl í músíkheimi Íslands og Evrópu. Hann stundaði fyrst nám við Tónskóla Sigursveins og hlaut síðan tvær bakkalársgráður, eina í hornleik og aðra í semballeik frá tónlistarháskólunum Hannover og Den Haag. Þegar þetta er skrifað leggur Halldór stund á meistarnám á sembal í Sviss við Schola Cantorum Basiliensis undir leiðsögn Andrea Marcon. Halldór spilar jöfnum höndum á sembal, orgel, píanó, nútíma- og náttúruhorn en er þar að auki slyngur á margskonar íslensk þjóðlagahljóðfæri sem meðlimur fjölskylduhljómsveitarinnar Spilmenn Ríkínís. Tveir geisladiskar Spilmanna komu út hjá Smekkleysu 2009 og 2021. Halldór hefur einnig fjölmörgum sinnum átt innlegg í sjóð nýrra íslenskra tónverka, jafnt rafræn sem lífræn. Þar á meðal eru eftir hann fjögur hljómsveitarverk, Merl (2010), Konsert fyrir hljómsveit (2011), Tónaljóð (2014) og Hornkonsert (2016). Halldór Bjarki hefur hlotið styrki frá minningarsjóðum Emils Thoroddsens og Karls Sighvatssonar og kvartett hans Amaconsort unnið til áheyrendaverðlauna Utrecht Oude Muziek Fringe 2018, sérstakra verðlauna Bayrischer Rundfunk í Deutscher Musikwettbewerb 2019, og Rheinsberger Hofkapelle 2019. Ásamt Barrokkbandinu Brák hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tónlistarviðburð ársins árið 2020. Halldór hefur komið fram víðsvegar í Evrópu, þar á meðal á Luzern Festival, Festival d’Ambronay, MA Festival Brugge og Listahátíð í Reykjavík. Af tónleikastöðum má nefna Berliner Philharmonie, Helsinki Musiikkitalo og Tivoli Vredenburg í Utrecht.
HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR sópran hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001. Hallveig hefur sungið nokkur óperuhlutverk, flest hjá Íslensku Óperunni en einnig víðar. Meðal hlutverka hennar eru Donna Anna í Don Giovanni, Micaëla í Carmen, Fiordiligi í Così fan Tutte, Giannetta í Ástardrykknum, Rödd af himnum í Don Carlo og Echo í Ariadne auf Naxos. Árið 2016 frumflutti hún hlutverk stúlku í óperu Kristians Blak, Ljós í ljóði í Færeyjum og árið 2018 frumflutti hún hlutverk Gilitruttar í samnefndri óperu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim. Hún hefur sungið sópranhlutverkið í mörgum helstu stórverkum tónbókmenntanna og hefur sungið margoft með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk fjölda annarra hljómsveita bæði hér á landi og erlendis. Hallveig hefur sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur frumflutt mörg ný íslensk verk, t.d. á Listahátíð í Reykjavík og á Sumartónleikum í Skálholti, auk upptaka fyrir útvarp. Hún hefur og haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi og erlendis undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng. Hallveig hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 og aftur árið 2018. Auk þess hlaut hún tilnefningu til sömu verðlauna árin 2014, 2016 og nú síðast fyrir árið 2020. Hún var tilnefnd til Grímuverðlauna sem söngvari ársins 2014 og 2017. Hallveig er listrænn stjórnandi sönghópsins Cantoque Ensemble sem hefur vakið mikla athygli síðustu ár og mun hópurinn ferðast um Norðurlönd í sumar í samstarfi við barokkhljómsveitirnar Camerata Öresund og Nylandia. Meðal næstu verkefna Hallveigar eru einnig Verdi Requiem í Langholtskirkju, H-moll messa Bach í Hallgrímskirkju með Dómkórnum í Reykjavík, Árstíðirnar eftir Haydn í Færeyjum og 9. sinfónía Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands svo fátt eitt sé nefnt.
HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR hefur um árabil verið ein af okkar fremstu söngkonum og hefur átt farsælan feril á óperusviði og tónleikapalli víða um heim. Fjöldi þeirra hlutverka sem hún hefur sungið eru nú um 60 talsins. Hanna Dóra hefur komið reglulega fram á ljóðatónleikum, sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fjölmörgum tónleikum og síðastliðin ár hefur hún sungið ýmis hlutverk í sýningum Íslensku óperunnar. Má þar helst nefna titilhlutverkið í Carmen, Eboli prinsessu í Don Carlo, Donnu Elviru í Don Giovanni, Brothers eftir Daníel Bjarnason og Marcellinu í Brúðkaupi Fígarós. Árið 2014 hlaut Hanna Dóra Íslensku tónlistarverðlaunin og fylgdi þeim nafnbótin „Söngkona ársins“ fyrir túlkun hennar á Eboli prinsessu. Hanna Dóra leggur sérstaka áherslu á flutning nýrrar tónlistar og hefur unnið náið með Snorra Sigfúsi Birgissyni tónskáldi undanfarin ár. Hún vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína í óperunni KOK sem frumflutt var í Borgarleikhúsinu vorið 2021. Hanna Dóra er aðjunkt og fagstjóri söngs við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
HELGA BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR lauk einleikara-og kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1987 þar sem aðalkennari hennar var Jónas Ingimundarson. Hún stundaði síðan framhaldsnám við Konservatoríið í Vínarborg hjá Leonid Brumberg og Sibeliusarakademíuna í Helsinki, hjá Liisu Pohjola og Tuiju Hakkila. Hún hefur leikið fjölmörg einleiksprógrömm, m.a. í Salnum í Kópavogi, á Listahátíð í Reykjavík og um allt land. Hún hefur auk þess leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, píanókonserta eftir Ravel, Poulenc, Brahms, Gershwin og Bach. Helga Bryndís lék einleik í beinni sjónvarpsútsendingu á Norðurlöndunum í spurningaþættinum Kontrapunkti. Hún hefur leikið mikinn fjölda tónleika með fremstu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins og hljóðritað marga geisladiska í samstarfi við aðra. Hún er meðlimur í Caput hópnum og hefur leikið með honum víða erlendis og hér heimavið auk þess að hafa leikið inn á geisladiska með þeim. Hún hefur einnig gert upptökur fyrir sjónvarp og útvarp, bæði ein og með öðrum. Hún starfar sem píanóleikari við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólana í Kópavogi og Reykjanesbæ.
HRÖNN ÞRÁINSDÓTTIR píanóleikari stundaði nám hjá Erlu Stefánsdóttur og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Í Þýskalandi stundaði hún nám við Tónlistarháskólann í Freiburg þar sem hún lauk píanókennaraprófi með ljóðasöngsmeðleik sem aukafag og síðar við Tónlistarháskólann í Stuttgart þar sem hún lauk mastersgráðu við ljóðasöngdeild skólans. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hrönn hefur verið virk í flutningi nýrrar tónlistar m.a. á Myrkum Músíkdögum og með kammersveitinni Ísafold ásamt því að hafa frumflutt fjölda sönglaga. Hún hefur verið virk í uppeldisstarfi ungra söngvara og verið tónlistarstjóri uppfærslna síðustu ára hjá óperudeild Söngskólans í Reykjavík þar sem fluttar hafa verið perlur óperubókmenntanna. Hún hefur einnig ferðast víða um land síðustu misseri og kynnt óperutónlist fyrir grunnskólabörn í öllum landshlutum. Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík og við Menntaskóla í tónlist, MÍT.
HÖRÐUR ÁSKELSSON hefur verið organisti og kantor Hallgrímskirkju frá því hann lauk framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og Alþjóðlegs orgelsumars. Árið 1982 stofnaði hann Mótettukór Hallgrímskirkju og kammerkórinn Schola Cantorum árið 1996. Með kórunum hefur hann flutt flest helstu verk kórbókmenntanna bæði með og án undirleiks. Þá hefur hann stjórnað frumflutningi margra verka fyrir kór og hljómsveit sem íslensk tónskáld hafa skrifað á undanförnum árum. Hörður hefur ásamt kórum sínum tekið þátt í ýmsum tónlistarhátíðum og -keppnum á alþjóðlegum vettvangi, og meðal annars unnið til verðlauna í Cork á Írlandi árið 1996, Noyon í Frakklandi 1998, Gorizia á Ítalíu árið 2002 og á Festival Cancó Mediterrànea 2014. Hörður hefur haldið tónleika í mörgum stærstu kirkjum Evrópu bæði sem kórstjóri og organisti, m.a. í Kölnardómkirkju, Notre Dame og St. Sulpice í París, dómkirkjunum í Frankfurt, Brüssel og Helsinki og Münster í Basel. Tónlistarflutningur Harðar hefur oftsinnis verið tekinn upp fyrir sjónvarp og útvarp og verið gefinn út á geislaplötum. Meditatio, nýjasta geislaplata Schola Cantorum undir stjórn Harðar, sem kom út hjá sænska útgáfufyrirtækinu BIS árið 2016, hefur hlotið einróma lof virtra erlendra gagnrýnenda, en fyrir diskinn og tónleika sína á árinu 2016 hlutu kórinn og Hörður Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hörður hefur hlotið margsháttar viðurkenningar fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi, þ.á m. Íslensku tónlistarverðlaunin og Menningarverðlaun DV, Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Þá var hann útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur 2002. Hörður hefur kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla þjóðkirkjunnar og á árunum 1985–1995 var hann lektor í litúrgískum söngfræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands. Hörður var tónlistarstjóri hátíðarhalda í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi árið 2000 og hann gegndi embætti söngmálastjóra þjóðkirkjunnar árin 2005–2011. Hörður lauk störfum við Hallgrímskirkju þann 1. júní s.l. og starfar nú sjálfstætt sem stjórnandi Mótettukórsins og Schola Cantorum.
INGIBJÖRG FRÍÐA HELGADÓTTIR er söngkona með fjölbreyttan bakgrunn og hefur lokið bæði klassísku og rytmísku söngnámi hér á landi. Þar að auki hefur hún lokið B.A. prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og hluta úr náminu stundaði hún í Sibeliusarakademíunni í Helsinki. Síðustu ár hefur hún starfað sem söngkona, sungið í kórum og kammerhópum, jazz- og popphljómsveitum, sem söng- og tónlistarkennari, við dagskrárgerð á RÚV og leitt skapandi tónlistarvinnusmiðjur fyrir börn og fullorðna.
INGVAR ALFREÐSSON er hljómborðsleikari, útsetjari og lagahöfundur. Hann útskrifaðist með B.A. próf frá Berklee College of Music í Boston þar sem hann sérhæfði sig í námi sem kallaðist Contemporary Writing and Production. Hann hefur starfað sem hljóðfæraleikari í ýmsum verkefnum, á tónleikum, í hljóðverum, í sjónvarpi og leikhúsum. Þá starfar hann sem meðleikari í nokkrum tónlistarskólum og tónlistarstýrir þar nemendasýningum. Ingvar hefur einnig unnið mikið við útsetningar og hefur meðal annars útsett Fiskidagstónleikana á Dalvík undanfarin ár svo eitthvað sé nefnt.
KRISTINN SIGMUNDSSON bassasöngvari lagði stund á söngnám hjá Guðmundi Jónssyni, Helene Karusso og John Bullock. Hann hefur komið fram í óperu- og tónleikahúsum víðsvegar um heim í u.þ.b. þrjá áratugi, svo sem New York, San Francisco, Los Angeles, Milano, London, Berlín, Amsterdam, Brüssel, Tokyo og Pekíng. Hann hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk. Kristinn hefur haldið marga ljóðatónleika á Íslandi, aðallega með Jónasi Ingimundarsyni. Þeir hljóðrituðu Svanasöng og Vetrarferð Schuberts, auk nokkurra diska með íslenskum og erlendum sönglögum. Hann hefur auk þess tekið upp Vetrarferðina með Víkingi Heiðari Ólafssyni. Af öðrum upptökum má nefna Don Giovanni og Töfraflautuna undir stjórn Arnolds Östman (Decca), Jóhannesar- og Mattheusarpassíu Bachs með Franz Bruggen (Phillips), Szenen aus Goethes Faust eftir Schumann undir stjórn Philippe Herreweghe (Harmonia Mundi), Fidelio undir stjórn Sir Colin Davis (London Symphony Orchestra), Die Gezeichneten eftir Franz Schreker, stj. Lothar Zagrosek (Deutsche Grammophon) og síðast en ekki síst, The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano undir stjórn James Conlon (Los Angeles Óperan). Kristinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga og má þar nefna Philadelphia Opera Prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere óperusöngvarakeppninni í Vín, Stämgaffeln - Det klassiska svenska fonogrampriset, Íslensku tónlistarverðlaunin, Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, Bæjarlistamaður Kópavogs, Útflutningsverðlaun Forseta Íslands og Íslandsstofu, Grímuverðlaun - Söngvari ársins, Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og Grammy verðlaunin fyrir upptökuna á óperunni ,,The Ghosts of Versailles“ eftir John Corigliano.
MATTHILDUR ANNA GÍSLADÓTTIR lauk bachelornámi í einleik frá Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Peter Máté og mastersnámi í meðleik við Royal Academy of Music í London með Andrew West sem aðalkennara. Matthildur lauk einnig mastersnámi í óperuþjálfun frá Alexander Gibson Opera School í Royal Conservatoire of Scotland. Þar naut hún leiðsagnar Tim Dean og Oliver Rundell og hlaut James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Veturinn eftir nám starfaði hún sem óperuþjálfi hjá RCS. Matthildur hefur komið að óperuuppsetningum m.a. hjá Íslensku óperunni, Óperudögum, British Youth Opera, Clonter Opera, Lyric Opera Studio í Weimar, Scottish Opera og Royal Academy Opera. Matthildur starfar á söngbraut tónlistardeildar Listaháskóla Íslands.
ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem söngvari ársins fyrir hlutverk sitt í Brothers, margverðlaunaðri óperu Daníels Bjarnasonar á Listahátíð 2018. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir hlutverk sitt í Don Carlo, sem var frumraun hans í Íslensku óperunni. Oddur lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum háskólann í Salzburg, Austurríki. Hann hlaut Lilli Lehmann viðurkenninguna fyrir framúrskarandi meistarapróf. Oddur hefur sungið fjölda óperuhlutverka við Íslensku óperuna og ber þar helst að nefna Don Giovanni, Almaviva greifa í Brúðkaupi Fígarós, Figaro í Rakaranum frá Sevilla og Rodrigo í Don Carlo. Önnur óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser (Óperuhúsið í Chemnitz, Þýskalandi), Schaunard í La bohème (Reisopera, Hollandi) og Prins Yeletsky í Pique Dame (Opernbühne Bad Aibling, Þýskalandi). Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erde eftir Gustav Mahler í Garnier-óperunni í París, Vetrarferðina og Schwanengesang á Schubert hátíðinni í Vilabertran á Spáni. Á Íslandi hefur komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, í Hallgrímskirkju með Mótettukórnum og Herði Áskelssyni í Mattheusarpassíunni eftir Bach, Solomon eftir Händel, Te Deum eftir Charpentier og Messu í F-dúr eftir Bach. Hann söng í Messíasi eftir Händel í Hörpu með Dómkórnum í Reykjavík undir stjórn Kára Þormar og í Jóhannesarpassíunni eftir Bach í Langholtskirkju með Jóni Stefánssyni. Oddur hefur hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum ljóðakeppnum. Hann fékk Schubert verðlaunin og verðlaun sem besti ljóða- og óratóríu flytjandinn í Francesc Viñas keppninnni í Barcelona. Hann sigraði Brahms-keppnina í Pörtschach í Austurríki og varð þriðji í Schubert keppninni í Dortmund, Þýskalandi.
PÉTUR BJÖRNSSON útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2015 þar sem kennarar hans voru Ari Þór Vilhjálmsson og Guðný Guðmundsdóttir. Sama haust hóf Pétur nám við Hochschule für Musik und Theater ,,Felix Mendelssohn Bartholdy" í Leipzig, fyrst undir handleiðslu Elfu Rúnar Kristinsdóttur og svo Carolin Widmann. Frá og með hausti 2019 stundar hann mastersnám í bekk Carolin Widmann við sama skóla. Til námsauka hefur hann einnig sótt ótal einkatíma og masterklassa hjá fiðluleikurum svo sem Christian Tetzlaff, Philippe Graffin, Sergei Ostrovsky, Ilya Gringolts og Robert Rozek og píanóleikaranum Phillip Moll. Pétur hefur komið víða fram sem einleikari svo sem í Kanada, Íslandi og í Þýskalandi. Nú síðast í mars 2019 þar sem hann frumlutti nýjan fiðlukonsert tileinkaðan honum eftir Elenu Postumi í Langholtskirkju með Ungfóníu og í desember 2019 í flutningi á Kammerkonsert Alban Berg ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni og Elju kammersveit í Iðnó en Pétur er virkur stofnfélagi í þeirri sveit. Sem flytjandi kammertónlistarhefur hann komið fram á Íslandi, Þýskalandi, Sviss og á Ítalíu. Þar má til að mynda nefna þátttöku hans á Reykholtshátíð 2018 og 2020 og með Skark ensemble á Íslandi og á Bodensee Festival í Þýskalandi. Pétur spilar reglulega sem varamaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess að hafa spilað með ungsveitum og skóla- og háskólasveitum á Íslandi, á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Þá hefur hann gegnt starfi konsertmeistara með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveit Tónlistarháskólans í Leipzig. Pétur er virkur utan klassísku tónlistarsenunnar en hann hefur verið meðlimur í kvartett Ólafs Arnalds á tónleikaferðalögum hans um heiminn síðan 2018. Þá hefur hann einnig samið og komið fram á tónleikum með gjörningasveitinni Hatara.
PÉTUR JÓNASSON hóf nám í gítarleik níu ára að aldri hjá Eyþóri Þorlákssyni og var síðar við framhaldsnám hjá Manuel López Ramos í Mexíkóborg. Að loknu námi þar hlaut Pétur heiðursstyrk Sonning-sjóðsins danska til frekara náms á Spáni hjá José Luis González og í kjölfarið var honum veittur styrkur frá spænska ríkinu til þess að stunda nám hjá José Luis Rodrigo í Santiago de Compostela. Árið 1986 var hann einn af tólf gítarleikurum víðs vegar að úr heiminum sem valdir voru til þess að leika fyrir Andrés Segovia á námskeiði sem haldið var í University of Southern California í Los Angeles. Pétur hefur komið fram sem einleikari á öllum Norðurlöndunum, á Stóra-Bretlandi, víðs vegar um Evrópu, Ameríku, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Eyjaálfu. Hann hefur gert fjölda útvarps- og sjónvarpsupptaka og leikið inn á hljómplötur og geisladiska, m.a. verk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hann. Hann var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 1990, fyrstur íslenskra einleikara. Á síðari árum hefur Pétur auk þess lagt áherslu á samtíma- og kammertónlist og er m.a. gítarleikari Caput-hópsins og breska tónlistarhópsins Riot Ensemble sem báðir sérhæfa sig í flutningi á samtímatónlist. Árið 2015 útskrifaðist Pétur með MSc gráðu frá Centre for Performance Science í Royal College of Music í London þar sem hann stundar nú doktorsnám. Rannsóknarefni hans eru áhrif flækni í tónefni á sjónræna athyglis- og vinnsluminnisferla. www.peturjonasson.com
Kammerkórinn SCHOLA CANTORUM hefur verið mikilvirkur flytjandi tónlistar undir stjórn Harðar Áskelssonar í 25 ár. Kórinn hefur á þessum árum komið víða við en líklega verið hvað atkvæðamestur í flutningi tónlistar frá 20. og 21. öld. Einnig hefur kórinn sinnt mjög gamalli fjölröddun endurreisnarinnar auk þess að flytja mörg stórvirki barokktímans í félagi við Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju. Schola Cantorum hefur einnig unnið með fjölmörgum öðrum listamönnum við tónleikahald, upptökur fyrir geislaplötur, sjónvarp og kvikmyndir og þar má nefna Björk, Sigur Rós, Wildbirds and Peacedrums, Hjaltalín, Tim Hecker, Ben Frost, Jóhann Jóhannsson og Kjartan Sveinsson. Þá má nefna upptökur á söng kórsins fyrir tölvuleikinn God of Wars sem Sony Playstation gaf út. Schola Cantorum hefur haldið tónleika víða um heim, nú síðast í Los Angeles í apríl 2017 þar sem kórinn söng á fernum tónleikum á Reykjavík Festival í boði Fílharmóníusveitar Los Angeles í Walt Disney Concert Hall. Schola Cantorum hefur sent frá sér marga geisladiska. Fyrir fjórum árum var það diskurinn Meditatio sem kom út á vegum sænsku útgáfunnar BIS og hefur hlotið afar lofsamlega umfjöllun víða um heim. Söngur Schola Cantorum hljómar jafnframt á fleiri diskum frá BIS í heildarútgáfu fyrirtækisins á hljómsveitar/kór verkum Jóns Leifs og má þar nefna Baldr, Hafís, Heklu og Eddu I og II. Árið 2018 á kom út hljómdiskurinn Sálmar á nýrri öld, þar sem kórinn syngur 26 nýja sálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Framundan bíða fleiri hljóðritanir fyrir BIS útgáfuna og einnig tónleikaverkefni þar sem nefna má frumflutning á óratóríunni The Gospel of Mary eftir Huga Guðmundsson og flutning á tímamótaverkinu Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi.
SIGRÚN PÁLMADÓTTIR sópran stundaði söngnám hjá Hólmfríði Benediktsdóttur, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Dunja Vejzovie og og Liselotte Hammes. Á árunum 2001-2013 stafaði hún aðallega við óperuhúsið í Bonn. Þar söng hún fjöldamörg burðarhlutverk óperubókmenntanna á borð við Næturdrottninguna í Töfraflautu Mozarts, Ólympíu í Ævintýrum Hoffmans, Zerbinettu í Ariadne á Naxos, titilhlutverkið í Luciu di Lammermoor, Víólettu Valéry í La traviata og Gildu í Rigoletto. Sigrún kom jafnframt reglulega fram í öðrum óperuhúsum, þar á meðal í Dresden, Wiesbaden og Köln. Hún hlaut verðlaun styrktarfélags óperunnar í Bonn 2004 fyrir vel unnin störf og framfarir. Vorið 2008 söng Sigrún hlutverk Víólettu Valéry í La traviata eftir Verdi hjá Íslensku óperunni, og hlaut hún í kjölfarið Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, í flokknum Söngvari ársins. Hér á landi hefur hún sungið á Vínartónleikum Sinfóníuhjómsveitar Íslands auk fleiri tónleika, m.a. Clörukvæði og canzonettur í Salnum í Kópavogi. Erlendis hefur Sigrún sungið fjölda tónleika, m.a víða í Þýskalandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Grikklandi, Ítalíu og víðar. Frá 2013 hefur Sigrún starfað sem söng- og tónlistarkennari í Tónlistarskóla Ísafjarðar ásamt því að vera aðstoðarskólastjóri í sama skóla síðan haustið 2020.
SIGURÐUR INGI EINARSSON er slagverksleikari og tónlistarkennari. Hann útskrifaðist af slagverksbraut frá Tónlistarskóla FÍH og seinna úr skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands. Sigurður hefur verið virkur við að spila allskyns stíla tónlistar, með hljómsveitum og í fjölbreyttum verkefnum. Einnig semur hann tónlist og gefur hana út undir sínu eigin nafni. Hann hefur kennt tónlist, bæði í grunnskólum og tónlistarskólum, en einnig hefur hann leitt skapandi tónlistarvinnusmiðjur.
SIGURÐUR HALLDÓRSSON nam sellóleik og söng í Reykjavík og síðar við Guildhall School of Music and Drama í London. Sigurður starfar m.a. með Caput hópnum, Voces Thules, Symphonia Angelica og Camerarctica. Hann hefur komið fram á alþjóðlegum listahátíðum víða um Evrópu, Norður-Ameríku, Kína og Japan. Sigurður hefur unnið í leikhúsi, m.a. að nokkrum tilraunasýningum í dans- og músíkleikhúsi og verið mjög virkur í alls kyns spunatónlist bæði sem flytjandi og kennari. Hann var einn af stofnendum 15:15 tónleikasyrpunnar sem sett var á fót árið 2002. Sigurður hefur sérhæft sig í flutningi tónlistar fyrri tíma með upprunalegum hljóðfærum. Helstu samstarfsmenn á því sviði hafa verið Helga Ingólfsdóttir, Ann Wallström, Bruno Cocset, Peter Spissky og Jaap Schröder, en þeir léku saman í tvo áratugi í Skálholtskvartettinum. Sigurður var listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju frá 2004 - 2014. Sigurður er prófessor við Listaháskóla Íslands og fagstjóri í sam-evrópska NAIP meistaranáminu (New Audiences and Innovative Practice).
SIGURÐUR HELGI ODDSSON nam píanóleik við Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga og Tónlistarskólann á Akureyri. Hann lauk framhaldsprófi vorið 2004 undir handleiðslu dr. Marek Podhajski. Á árunum 2008 til 2011 stundaði hann framhaldsnám í kvikmyndatónlist, djasspíanóleik og hljómsveitarstjórn við Berklee College of Music í Boston. Meðal kennara hans voru hljómsveitarstjórinn dr. Isaiah Jackson og píanóleikararnir Neil Olmstead og Bob Winter. Hann lauk þaðan BM gráðu summa cum laude. Hann hefur starfað jöfnum höndum sem klassískur og rytmískur píanóleikari ásamt því að stjórna kórum, kenna og semja tónlist í frístundum. Hann starfaði um tíma sem píanókennari og meðleikari við Listaskóla Mosfellsbæjar og frá því í febrúar 2018 hefur hann gegnt fullri stöðu sem píanóleikari við Söngskólann í Reykjavík. Í gegnum tíðina hefur hann komið að ýmsum óperu- og söngleikjauppfærslum hjá áhuga- og atvinnuleikfélögum, nú síðast stýrði hann hljómsveit á uppfærslu Söngskólans í Reykjavík á Fiðlaranum á þakinu í febrúar 2020. Samhliða tónlistinni rekur Sigurður Helgi Sveiflustöðina, dansskóla í hjarta Reykjavíkur sem sérhæfir sig í lindy hop og skyldum sveifludönsum. Hann er sömuleiðis stofnandi og aðalskipuleggjandi alþjóðlegu danshátíðarinnar Lindy on Ice sem hefur verið árviss viðburður á Íslandi síðan 2018. Þá kemur hann einnig reglulega fram með eigin hljómsveit sem leikur blöndu af blús- og sveiflutónlist ásamt öðrum tegundum djasstónlistar frá fyrri hluta 20. aldar.
SVAFA ÞÓRHALLSDÓTTIR, kennari í Krílasöng fyrir 6-18 mánaða, er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún lauk tónlistarkennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar mastersgráðu í söng og tónmenntakennslu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Svafa starfar sem tónlistarkennari, söngvari og kórstjóri í Kaupmannahöfn. Hún hefur sérstakan áhuga á tónlistarþroska hjá börnum, og er hún hluti af tónlistarhópnum “Den poetiske elefant”/ “Ljóðræni fíllinn” sem flytur reglulega klassíska tónleika fyrir börn.
VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR, kennari í Tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára, er söngkona og tónmenntakennari frá Akranesi. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og lokaprófi í söng frá Tónlistarskóla FÍH árið 2004. Valgerður hefur frá árinu 2000 kennt tónlist á leikskólum og í grunnskólum hér á Íslandi sem og haldið ýmis tónlistarnámskeið fyrir börn og fullorðna. Valgerður hefur einnig stjórnað barna- og fullorðinskórum í Danmörku og á Íslandi og er nú stjórnandi Skólakórs Grundaskóla og Karlakórsins Svana á Akranesi. Þar rekur hún einnig afþreyingarsetrið Smiðjuloftið ásamt eiginmanni sínum og kennir m.a. tónlistarnámskeið ætluð 3-5 ára börnum og foreldrum þeirra. Hún vann fyrstu verðlaun í Lagakeppni Hannesarholts 2020 og er Bæjarlistamaður Akraness 2021.